Blakkrakkar frá Þróttir fara á kostum á Íslandsmóti

Síðastliðna helgi tóku 9 lið frá Þrótti þátt í fyrri hluta Íslandsmóts hjá 6., 5. og 3. flokki, sem fór fram í Kórnum í Kópavogi.  Að venju var Þróttur með fjölmennasta hópinn á mótinu en alls tóku 41 lið þátt í mótinu í 8 mismunandi deildum.

Lið Þróttar stóðu sig með stakri prýði og voru oftar en ekki efst eða ofarlega í sínum keppnisflokkum.

Lesa meira

Fjögug og fróðleg helgi hjá fótboltakrökkum

Knattspyrnuakademía Tandrabergs og yngri flokka Fjarðabyggðar fór fram í Höllinni nú, á föstudag og laugardag.  Alls mættu milli 150 og 160 börn til leiks, það er örlítil fækkun frá í fyrra, en nú setti veðrið nokkurt strik í reikninginn.

Lesa meira

Þjálfarstyrkir ÍSÍ umsóknarfrestur til 19. nóvember

Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ.  Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða með öðrum þeim hætti sem telst bæta þekkingu þeirra í þjálfun og mun þar með nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi.

Lesa meira

Sprettsstyrkir afhentir formlega á fimleikamóti á laugardag

 

Fimleikadeildar Hattar stendur fyrir fimleikamóti laugardaginn 17. nóvember í íþróttahúsinu á Egilsstöðum. Í tengslum við mótið fer fram formleg afhending styrkja úr Spretti afrekssjóði UÍA og Alcoa og undirritun á samstarfssamningi Hattar, UÍA og ME vegna nýstofnaðs afrekshóps í fimleikum.

Lesa meira

Gull og gleði á glímumóti

Laugardaginn 27. október síðaðastliðinn fór fram fjölþætt glímumót á Reyðarfirði, en þar var haldin fyrsta umferð í meistaramótsröðinni 16 ára og eldri, Íslandsmeistaramót og Sveitarglíma 15 ára og yngri.

Keppendur voru um 70 talsins og komu víðsvegar að. UÍA átti þar myndarlegan hóp sem taldi 20 keppendur. Allir stóðu þeir sig hið besta, sýndu falleg tilþrif og skiluðu ótal verðlaunum í hús. Mikil og góð stemming var í húsinu og ætlaði þar allt um koll að keyra í mest spennandi viðureignum í sveitaglímunnar.

Lesa meira

Fjör í Fellum, taka 2

Hátíðarhöld í tilefni af 80 ára afmæli Hugins í Fellum frestuðust vegna veðurofsa í síðustu viku.

Nú verður gerð önnur tilraun og skákmót fyrir unga sem aldna verður haldið fimmtudagskvöldið 8. nóvember kl. 20 og borðtennismót verður laugardaginn 10. nóvember kl. 11. Það er einnig ætlað öllum aldurshópum. Báðir viðburðir fara fram í Fellaskóla.

Heiðranir í tilefni af 40 ára afmæli BLÍ

Íslands fagnaði nú um helgina 40 ára afmæli sínu. Af því tilefni voru veitt ýmis heiðursmerki fyrir vel unnin störf og rataði eitt slíkt hingað austur en Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir blakdeild Þróttar fékk silfurmerki fyrir ötult starf í þágu hreyfingarinnar.

Lesa meira

Knattspyrnuakademía Tandrabergs

 

Knattspyrnuakademía Tandrabergs fyrir 7. – 3. flokk  karla og kvenna verður haldin 9. og 10. nóvember í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði.

Lesa meira

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok