Frjálsíþróttamóti UÍA og Bókakaffis frestað vegna veðurs
Frjálsíþróttamóti UÍA og Bókakaffis sem vera átti í Brúarási nú á laugardaginn hefur verið frestað vegna hraklegrar veðurspár.
Við bendum keppnisglöðum frjálsíþróttagörpum á að nóg verður um að vera á næstu vikum en sunnudaginn 11. nóvember fer fram Nóvembermót UFA í Boganum á Akureyri. Nánari upplýsingar má fá um það hér á síðu félagsins.
Helgina á eftir þann 17. nóvember verða hinir árlegu Silfurleikar ÍR í Laugardalshöllinni og nánari upplýsingar um þá má sjá hér á síðu ÍR.
Við bíðum því með mót UÍA og Bókakaffis, þar til um hægist.