Stofnfundur Skautafélags Austurlands

Vekjum athygli á að áhugamenn um skautaíþróttir á Austurlandi hyggjast stofna Skautafélag Austurlands. Stofnfundur félagsins verður nú á fimmtudaginn 20. janúar á Kaffi Egilsstöðum kl 20.00. Félaginu ætlað að þjóna öllu mið Austurlandi og eru allir velkomnir á fundinn.

Lesa meira

Heimsókn á Eskifjörð

Formaður og framkvæmdstjóri áttu  fund með stjórnum aðildarfélaga á Eskifirði nú í vikunni. Eins og á fyrri fundum, með aðildarfélögum víðsvegar um Austurland, var markmið fundarins að gefa aðildarfélögunum skýrari sýn á starf UÍA og kynnast starfi félaganna sjálfra betur.

Lesa meira

Fjörug frjálsíþróttahelgi framundan

Frjálsíþróttaráð UÍA blæs til fjörugrar frjálsíþróttahelgi dagana 15.-16. janúar.

Laugardaginn 15. janúar fer fram á Reyðarfirði hið árlega Meistaramót UÍA í frjálsum íþróttum fyrir 11 ára og eldri og á sunnudeginum 16. janúar verður Frjálsíþróttadagur UÍA haldinn á Egilsstöðum.

Lesa meira

Fjörugur frjálsíþróttadagur UÍA

Frjálsíþróttaráð UÍA efndi til Frjálsíþróttadags UÍA sunnudaginn 16. janúar. Þar var líf og fjör enda boðið uppá margvíslegar æfingar jafnt fyrir byrjendur sem og lengra komna. Um 17 krakkar á aldrinum 11-16 ára tóku þátt og var í þeim hópi bæði að finna þrautreyndar frjálsíþróttakempur sem og krakka sem voru að stíga sín fyrstu spor í greininni.

Frjálsíþróttaráð fékk til liðs við sig gestaþjálfara Ara Jôsavinsson frá UMSE og stjórnaði hann hópnum á æfingum og hélt auk þess fyrirlestur um íþróttaiðkun og mátt hugarfars í íþróttaþjálfun. Þökkum við Ara og þátttakendum í Frjálsíþróttadeginum kærlega daginn.

Myndir af fræknum frjálsíþróttakrökkum má sjá hér.

 

Bronsstelpurnar okkar

Fjórar blakkonur frá Blakdeild Þróttar í Neskaupsstað, þær Helena Kristín Gunnarsdóttir, Kristín Salín Þórhallsdóttir, Miglena Apostolova og Zaharina Filipova, eiga sæti í íslenska kvennalandsliðinu í blaki. Urðu þær ásamt stöllum sínum í íslenska landsliðinu í þriðja sæti á Novotel Cup boðsmótinu sem fór fram í Lúxemborg 7.-9. janúar

Lesa meira

Daði Fannar íþróttamaður Hattar

Íþróttafélagið Höttur sá um framkvæmd Þrettándagleði Fljótsdalshéraðs í gær. Veður og vindar settu nokkuð strik í dagskrána og var hún flutt inní íþróttahúsið. Á Þrettándagleðinni verðlaunar Höttur jafnan þá íþróttamenn sem þótt hafa skarað fram úr á árinu. Björn Ingimarsson bæjarstjóri ásamt Davíð Þór Sigurðarsyni formanni Hattar sáu um afhendinguna.

Íþróttamaður Hattar 2010 var Daði Fannar Sverrisson, frjálsíþróttamaður. Daði Fannar er efnilegur íþróttamaður sem stundar íþrótt sína af samviskusemi og dugnaði. Hegðun hans og framkoma er til fyrirmyndar jafnt í keppni sem og á æfingum. Hann er ávallt einbeittur og jákvæður og tekur sigrum jafnt sem ósigrum af yfirvegun.

Lesa meira

Meistaramót UÍA í frjálsum íþróttum 11 ára og eldri

Meistaramót UÍA í frjálsum íþróttum fór fram í Fjarðahöllinni á Reyðarfirði 15. janúar. Þar mættu um 30  keppendur frá 7 félögum til leiks. Keppt var í aldursflokkum 11 ára, 12-13 ára, 14-15 ára og 16 ára og eldri hjá báðum kynjum, í 60 m  hlaupi, langstökki, hástökki, kúluvarpi og hringhlaupi. Framkvæmd mótsins gekk vel og víða sáust skemmtileg tilþrif.

Þökkum við þátttakendum og sjálfboðaliðum kærlega fyrir ánægjulegt mót.

Myndir af mótinu má finna hér

Úrslit af mótinu munu birtast á mótaforriti FRÍ innan skamms.

Nýárssýning Fimleikadeildar Hattar

Föstudaginn 14. janúar fer fram Nýárssýning Fimleikadeildar Hattar í íþróttahúsinu á Egilsstöðum. Á sýningunni munu um 200 iðkendur sýna listir sýnir og er þema sýningarinnar í ár Sirkus.

Lesa meira

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ