Stofnfundur Skautafélags Austurlands
Vekjum athygli á að áhugamenn um skautaíþróttir á Austurlandi hyggjast stofna Skautafélag Austurlands. Stofnfundur félagsins verður nú á fimmtudaginn 20. janúar á Kaffi Egilsstöðum kl 20.00. Félaginu ætlað að þjóna öllu mið Austurlandi og eru allir velkomnir á fundinn.
Á dagskrá er m.a. kosning formanns og samþykktir félagsins verða bornar undir atkvæðagreiðslu. Þá verður einnig tekin ákvörðun um rekstur og aðgang að skautasvelli í Kornskálanum á Egilsstöðum, sem sjálfboðaliðar á vegum Alcoa gerðu í síðustu viku.