Sautján keppendur á unglingalandsmóti

Sautján keppendur frá UÍA taka þátt í unglingalandsmóti UMFÍ sem hófst í Þorlákshöfn í morgun.

Hrafn Guðlaugsson, kylfingur, var fyrstur af stað af keppendum UÍA en hann hóf leik klukkan átta í morgun. Í dag verður að auki keppt í frjálsum íþróttum og fótbolta. UÍA sendir einnig keppendur í glímu og sundi en þær greinar hefjast á morgun. Nokkrir foreldrar eru með í för enda mótið fjölskylduhátíð. Lovísa Hreinsdóttir þjálfar frjálsíþróttahópinn og Stefán Bogi Sveinsson, framkvæmdastjóri UÍA, verður við setningarathöfnina í kvöld. Mótinu lýkur á sunnudag en hægt er að fylgjast með á www.ulm.is.

Góður árangur á Sumarleikum HSÞ

Keppendur frá UÍA unnu til fjölda verðlauna á Sumarleikum HSÞ sem fram fóru um helgina. Einn keppandi komst með árangri sínum í úrvalshóp FRÍ.

Þrír keppendur frá UÍA kepptu á leikunum, þeir Brynjar Gauti Snorrason, Atli Pálmar Snorrason og Bjarmi Hreinsson, allir frá Egilsstöðum.

Brynjar, sem keppti í flokki sveina 15-16 ára, vann til gullverðlauna í spjótkasti og 1500 metra hlaupi, silfurverðlauna í kúluvarpi og bronsverðlauna í kringlukasti og 800 metra hlaupi.

Bjarmi, sem einnig keppti í sveinaflokki, sigraði í bæði kúluvarpi og sleggjukasti. Hann kastaði sleggjunni 44,48 metra og komst með því inn í úrvalshóp FRÍ í greininni.

Við hjá UÍA erum stolt af árangri drengjanna og búumst við miklu af þeim í framtíðinni.

Leikskýrslur og staða

Uppfærð staða í Malarvinnslubikarnum og leikskýrslur þær sem hafa borist verða birtar á heimasíðunni á morgun.

Þetta hefur tafist hjá skrifstofunni sökum anna, tilrauna til að koma upp sérstöku tölvukerfi til að halda utan um deildina og kærumála sem ekki höfðu verið til lykta leidd.

Líklega tekst ekki að koma tölvukerfinu í gagnið og þetta verður því fært inn handvirkt hér á síðuna. Ég minni félögin eindregið á að skila rétt útfylltum skýrslum til skrifstofu svo fljótt sem verða má.

Vonandi eru byrjunarörðugleikar í mótinu að baki og hægt að halda áfram að skemmta sér við að spila fótbolta.

Malarvinnslubikarinn: Sjötta og sjöunda umferð

Allnokkrir leikir hafa verið leiknir í Malarvinnslubikarnum undanfarnar tvær vikur.

Sjötta umferð keppninnar var leikin sunnudaginn 20. júlí. KR-ingar gerðu góða ferð suður í Hornafjörð og unnu heimamenn í Dynamó Höfn 2-0.

Ferð Þristar til Borgarfjarðar var sömuleiðis ferð til fjár en þeir unnu góðan 2-1 sigur á heimamönnum. UMFB átti ívið meira í leiknum en það eru jú mörkin sem telja.

Síðasti leikur umferðarinnar var á Seyðisfirði en þar höfðu gestirnir í BN ´96 sigur gegn liði 06. apríl 1-3. Alir leikir umferðarinnar unnust því á útivelli.

Sjöunda umferðin fór fram um liðna helgi. BN ´96 gerði góða ferð á Fellavöll og unnu stórsigur á Þristarmönnum 2-6.

Á Seyðisfirði gerðu KR og 06. apríl 1-1 jafntefli í hörkuleik.

Leikur UMFB og Dynamó Hafnar sem fram fór á Borgarfirði var flautaður af undir lok fyrri hálfleiks eftir að leikmaður gestana veittist að dómara með höggum. Staðan þegar leikurinn var flautaður af var 7-3 heimamönnum í vil. UÍA lítur málið vitaskuld mjög alvarlegum augum og er með það til skoðunar hvaða viðurlögum verður beitt og hver úrslit leiksins verða. Verður tilkynnt innan tíðar hver niðurstaða málsins verður.

Til viðbótar við þetta var einum leik í 8. umferð keppninnar flýtt um viku. KR-ingar tóku á móti Þristi og unnu 1-0 sigur.

Eins og fram hefur komið er var stöðusíða Malarvinnslubikarsins hökkuð af óprúttnum aðilum. Unnið er að því að setja hana upp að nýju og vonandi verður hún komin í gagnið sem allra fyrst.

Malarvinnslubikarinn: Fimmta umferð

Heil umferð var leikin í Malarvinnslubikarnum á sunnudag. Keppnin er æsispennandi.

Á Fellavelli tóku Þristarmenn á móti langt að komnum liðsmönnum Dýnamó. Gestrisnin var ekki í hávegum höfð og höfðu heimamenn sigur 3-1.

UMFB lék sinn fyrsta heimaleik á tímabilinu, enda nú búið að heyja heimavöll þeirra. Höfðu þeir baráttusigur gegn 06. apríl 3-2.

Í Fjarðabyggðarhöllinni léku heimamenn í KR gegn grönnum sínum í BN ´96. Norðfirðingarnir gerðu góða ferð þangað og unnu stórsigur 2-5.

Malarvinnslubikarinn er æsispennandi í ár. Stöðuna í deildinni má sjá með því að smella á hlekkinn Malarvinnslubikarinn 2008 hér vinstra megin á síðunni.

Malarvinnslubikarinn: Fjórða umferð

Heil umferð var leikin í Malarvinnslubikarnum í gær. Nokkur óvænt úrslit litu dagsins ljós.

Í Fjarðabyggðarhöllinni tók KR á móti UMFB. Fóru leikar svo að gestirnir höfðu sigur, 2-4. Skúli Andrésson skoraði þrennu fyrir gestina og hefur nú skorað fimm mörk í tveimur leikjum fyrir Borgfirðinga.

Á Fellavelli áttust við lið Þristar og 06. apríl. Þar höfðu heimamenn 3-2 sigur.

Í Hornafirði tóku heimamenn í Dýnamó á móti BN ´96 og höfðu 3-2 sigur.

Staðan í keppninni verður birt á vefnum á morgun.

Íslands ógæfu verður allt að vopni

Heimasíða Malarvinnslubikarsins hefur verið hökkuð.

Í stað stöðunnar birtast skilaboð á tyrknesku. Þrátt fyrir tilraunir tókst ekki að þýða annað orð en „ást“ í skilaboðunum. Unnið er að viðgerð á kerfinu.
Einn leikur verður í keppninni í kvöld, UMFB tekur á móti BN.

Fjör í frjálsum

UÍA heldur þessa dagana á Egilsstöðum einn af Frjálsíþróttaskólum UMFÍ. Þar eru saman komnir 15 krakkar alls staðar af á landinu við æfingar á hinum ýmsu greinum frjálsra íþrótta.

Hópurinn unir sér vel undir leiðsögn Ólafs Björnssonar yfirþjálfara en hann heldur utan um hópinn á æfingum og í hinum ýmsu viðburðum. Á dagskránni auk frjálsíþróttaæfinga eru gönguferðir, leikir, spil, pool, borðtennis, sund, óvissferð og ýmislegt fleira.

Á æfingunum er farið yfir allar helstu greinar frjálsra íþrótta, krakkarnir frædd um grundvallaratriði að baki árangri í greinunum og tæknin kennd. Á síðari æfingu dagsins í dag fengum við góða gesti. Það voru þeir Einar Hróbjartur Jónsson spjótkastari og Hreinn Halldórsson, fyrrverandi Evrópumeistari í kúluvarpi. Kenndu þeir krökkunum tökin á kastgreinunum. Hér fyrir neðan má sjá myndir af því.

Skólanum lýkur á föstudagsmorgun með frjálsíþróttamóti þar sem krakkarnir keppa í sínum eftirlætisgreinum. Áhugasamir eru hvattir til að kíkja við á Vilhjálmsvelli og sjá hvernig þeim tekst til.

Nýr formaður Hugins

Nýr formaður var kjörinn á aðalfundi Hugins á Seyðisfirði sem fram fór á mánudag.

Jóhann Hansson sem verið hefur formaður félagsins um áraraðir og setið í stjórn félagsins í 37 ár, lét af störfum og er óhætt að segja að um sé að ræða tímamót hjá félaginu. Jóhann sat að auki í stjórn UÍA í 13 ár og eru honum þökkuð kærlega mikil og góð störf í þágu ungmennafélagshreyfingarinnar.

Margrét Vera Knútsdóttir var kjörin nýr formaður Hugins en auk hennar var kjörin ný aðalstjórn.

UÍA óskar nýrri stjórn og formanni velfarnaðar í störfum sínum og vonast eftir ánægjulegu samstarfi.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ