Sumarhátíð 2008 lokið

Á sunnudag lauk Sumarhátíð UÍA með afhendingu bikara fyrir frjálsar íþróttir. Alls tóku á bilinu 300-350 keppendur þátt í hátíðinni.

Mikil ánægja er hjá UÍA með þátttökuna og gekk framkvæmd hátíðarinnar vel. UÍA vill sérstaklega þakka öllum þeim sjálfboðaliðum sem unnu við framkvæmd mótanna, en án þeirra er ekki hægt að halda hátíð af þessu tagi. Eins eiga foreldrar og aðrir gestir hátíðarinnar þakkir skyldar fyrir að mæta, jafnvel langt að, til að hvetja keppendur.

Úrslit úr einstökum mótum verða birt hér á vefnum á næstu dögum eftir því sem búið er að vinna úr þeim.

Góður árangur á MÍ

Keppendur frá UÍA nældu í tvö gull og þrjú brons á MÍ 11-14 ára sem fram fór á Laugum um helgina.

Daði Fannar Sverrisson sigraði í spjótkasti í flokki 12 ára stráka með kasti upp á 36,62 metra. Hann nældi sér einnig í bronsverðlaun í kúluvarpi.

Heiðdís Sigurjónsdóttir náði gullverðlaunum í langstökki 12 ára stelpna er hún stökk 4,95 metra. Að auki náði Heiðdís bronsverðlaunum í hástökki og 800 metra hlaupi.

Sannarlega frábær árangur.

Tvenn gullverðlaun á unglingalandsmóti

Tvenn gullverðlaun skiluðu sér í tjald UÍA á unglingalandsmótinu í Þorlákshöfn og nokkuð af silfur og bronsverðlaunum. Hrafn Guðlaugsson sigraði í golfi 16-18 ára á 155 höggum, ríflega 20 höggum minna en næsti maður. Í spjótkasti 12 ára stráka sigraði Daði Fannar Sverrisson með kasti upp á 37,78 metra. Árangur keppenda UÍA var eftirfarandi:

Glíma

Stelpur 11-12 ára
2. Telma Sif Steinarsdóttir, 2

Piltar 13-14 ára:
2. Hjörtur Elí Steindórsson 1

Golf

16-18 ára
1 Hrafn Guðlaugsson 75 80 155

Sund

Stelpur 11-12 ára 50 metra skriðsund
7 Guðdís Benný Eiríksdóttir 41,5

Strákar 13-14 100 metra bringusund
5 Einar Bjarni Hermannsson 01:47,1

Stelpur 11-12 50 metra bringusund
10 Guðdís Benný Eiríksdóttir 51,71

Strákar 13-14 50 metra bringusund
7 Einar Bjarni Hermannsson 49,27

Strákar 13-14 50 metra flugsund
8 Einar Bjarni Hermannsson 46,19

Frjálsar íþróttir

Hástökk Stelpur 12 ára
4-5 1,35 Heiðdís Sigurjónsdóttir
4-5 1,35 Árdís Ósk Aðalsteinsdóttir

Langstökk Telpur 13 ára
4 4,21 Erla Gunnlaugsdóttir

Spjótkast (400 gr) Piltar 13 ára
3 37,05 Andrés Kristleifsson

Kúluvarp 2,0 kg. Strákar 12 ára
2 10,54 Daði Fannar Sverrisson

Langstökk Sveinar 15 - 16 ára
16 4,79 Brynjar Gauti Snorrason

Langstökk Strákar 12 ára
15 3,60 Daði Fannar Sverrisson

800 m. Telpur 13 ára
8 2:52,47 Erla Gunnlaugsdóttir

800 m. Piltar 13 ára
5 2:39,66 Andrés Kristleifsson

60 m. úrslit Stelpur 12 ára
3 09,02 Heiðdís Sigurjónsdóttir

Kúluvarp 4,0 kg. Sveinar 15 - 16 ára
3 12,82 Bjarmi Hreinsson

5 11,96 Brynjar Gauti Snorrason

Hástökk Strákar 12 ára
7 1,20 Daði Fannar Sverrisson

Spjótkast(400 gr) Telpur 13 ára
11 19,60 Erla Gunnlaugsdóttir

Hástökk Piltar 13 ára
3 1,45 Andrés Kristleifsson

Kúluvarp 3,0 kg. Telpur 13 ára
19 6,35 Erla Gunnlaugsdóttir

800 m. Sveinar 15 - 16 ára
9 2:25,07 Brynjar Gauti Snorrason

600 m. Stelpur 12 ára
3 1:52,88 Heiðdís Sigurjónsdóttir
25 2:29,98 Árdís Ósk Aðalsteinsdóttir

Hástökk Telpur 13 ára
8-9 1,35 Erla Gunnlaugsdóttir

Langstökk Stelpur 12 ára
2 4,51 0 Heiðdís Sigurjónsdóttir

Spjótkast (600 gr) Sveinar 15 - 16 ára
7 41,33 Brynjar Gauti Snorrason
8 40,70 Bjarmi Hreinsson

100 m. úrslit. Telpur 13 ára
9 14,50 Erla Gunnlaugsdóttir

Langstökk Piltar 13 ára
5 4,33 Andrés Kristleifsson

4*100 m. boðhl. Telpur 13 ára
6 1:00,75 Sveit ÚÍA

Kúluvarp 2,0 kg. Stelpur 12 ára
4 8,76 Birta Hörn Guðmundsdóttir
19 6,66 Árdís Ósk Aðalsteinsdóttir
29 6,23 Heiðdís Sigurjónsdóttir

Spjótkast(400 gr) Strákar 12 ára
1 37,78 Daði Fannar Sverrisson

Stjórn UÍA óskar þjóðinni til hamingju með handboltalandsliðið

Stjórn UÍA hefur samþykkt ályktun þar sem fagnað er´frábærum árangri íslenskra hadknattleiksmanna á ólympíleikunum í Peking.

Ályktunin hljóðar svo:

„Stjórn Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands óskar Handknattleikssambandi Íslands, Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands og íslensku þjóðinni til hamingju með glæsilegan árangur íslenska karlalandsliðsins í handknattleik á Ólympíuleikunum í Peking. Árangurinn er ævarandi minnismerki um glæsilegan árangur stórhuga þjóðar. Framganga þeirra og frammistaða er öðru íslensku íþróttafólki og æsku landsins frábært fordæmi og hvatning til frekari afreka.“

Áfram Ísland!

Borgfirðingum dugir stig

UMFB dugir jafntefli gegn 06. apríl til að tryggja sér Malarvinnslubikarinn 2008. Liðin mætast á Seyðisfirði í lokaumferð keppninnar. Dynamó Höfn hefur skráð sig úr leik.

UÍA fékk í dag staðfestingu frá Hornfirðingum á að þeir væru hættir þátttöku. „Það er búið að vera þétt prógramm hjá mfl. karla hér á Höfn ásamt 3.flokk kk en mikið af þeim leikmönum spila með Dýnamó, einnig er fólk farið að flykkjast aftur í bæinn í skóla. Við viljum bara biðjast afsökunar á þessu hjá okkur, þar sem við vildum auðvitað aldrei að þetta myndi gerast,“ segi í tilkynningu Dynamó. Liðið hafði lokið fimm leikjum af níu sem áttu að hafa verið leiknir og erfiðlega gekk að ná í forsvarsmenn liðsins.

Liðið telst hafa tapað öllum leikjum sínum 0-3. Úrslit keppninnar ráðast um helgina þegar 06. apríl tekur á móti UMFB og BN á móti KR. Borgfirðingar eru efstir með 21 stig og dugir jafntefli. Tapi Borgfirðingar getur BN stolið titlinum með að vinna KR. Stigin duga reyndar ekki ein, Borgfirðingar eru með 13 mörk í plús en Norðfirðingar 10.

Dulbúin gæfa í tugatali

Malarvinnslubikarkerfið er komið í lag. Hægt er að sjá stöðuna í keppninni með að smella á linkinn hér til vinstri.

UMFB sigurvegarar í Malarvinnslubikarnum

Eftir æsispennandi leik í lokaumferð Malarvinnslubikarsins hömpuðu Borgfirðingar bikarnum.

Borgfirðingar héldu á Seyðisfjörð og léku þar við heimamenn í 06. apríl. Það blés ekki byrlega fyrir gestunum sem voru 2-0 undir í hálfleik, en þurftu á stigi að halda til að tryggja sér bikarinn. Þeir girtu sig í brók í síðari hálfleik og skoruðu þrjú mörk í röð en heimamenn jöfnuðu þegar um 10 mínútur voru eftir af leiknum. Lokamínúturnar voru æsispennandi og áttu heimamenn m.a. þrumuskot rétt fram hjá marki gestanna. En Borgfirðingar héldu út og gleðin var mikil þegar fyrirliði og formaður UMFB, Ásgrímur Ingi Arngrímsson tók við bikarnum úr hendi framkvæmdastjóra UÍA.

Í Fjarðabyggðarhöllinni gerðu gestirnir í BN ´96 sér lítið fyrir og unnu öruggan sigur á heimamönnum í KR, 3-6. Ef Borgfirðingar hefðu ekki náð stigi á Seyðisfirði hefði því bikarinn endað í Neskaupstað. Það varð þó ekki að þessu sinni en Norðfirðingar munu án vafa mæta tvíefldir til leiks að ári.

Meistarmót í frjálsum 11-14 ára

Nú um helgina verður Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum 11-14 ára haldið á Laugum.

Að þessu sinni munu 3 keppendur frá UÍA taka þátt í mótinu. Það eru þau Daði Fannar Sverrisson, Erla Gunnlaugsdóttir og Heiðdís Sigurjónsdóttir. Öll stóðu þau sig með miklum sóma á Unglingalandsmótinu í Þorlákshöfn og við hjá UÍA vonumst til þess að þau standi sig jafnvel betur nú um helgina. Þjálfari krakkanna er Lovísa Hreinsdóttir.

Sautján keppendur á unglingalandsmóti

Sautján keppendur frá UÍA taka þátt í unglingalandsmóti UMFÍ sem hófst í Þorlákshöfn í morgun.

Hrafn Guðlaugsson, kylfingur, var fyrstur af stað af keppendum UÍA en hann hóf leik klukkan átta í morgun. Í dag verður að auki keppt í frjálsum íþróttum og fótbolta. UÍA sendir einnig keppendur í glímu og sundi en þær greinar hefjast á morgun. Nokkrir foreldrar eru með í för enda mótið fjölskylduhátíð. Lovísa Hreinsdóttir þjálfar frjálsíþróttahópinn og Stefán Bogi Sveinsson, framkvæmdastjóri UÍA, verður við setningarathöfnina í kvöld. Mótinu lýkur á sunnudag en hægt er að fylgjast með á www.ulm.is.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ