Úrslitaleikur Malarvinnslubikarsins
Það verða Boltafélag Norðfjarðar og Höttur sem spila úrslitaleik Bikarkeppni UÍA og Malarvinnslunar.
Leikurinn fer fram á Fáskrúðsfjarðarvelli og hefst hann klukkan 19:00. Búið var að auglýsa leikinn klukkan 14:00 en vegna óviðráðanlegra orsaka þurfti að seinka leiknum. Veðurspáin er frábær og skorum við á alla sem gaman hafa af knattspyrnu að fjölmenna á Fáskrúðsfjörð og styðja sitt lið.