Tveir UÍA menn í úrslitum Norðurlandamótsins í körfubolta

 

Andrés Kristleifsson og Eysteinn Bjarni Ævarsson, körfuknattleiksmenn úr 10. flokki Hattar, léku með íslenska U-16 ára landsliðinu til úrslita um Norðurlandameistaratitilinn um helgina.

 

 

Í úrslitaleiknum tapaði íslenska liðið fyrir því finnska 84-67 en mótið fór fram í Svíþjóð. Andrés segist mjög þakklátur fyrir að hafa fengið þetta tækifæri.

„Mér fannst rosalega gaman að spila á móti og ég efast ekki um að Eysteinn hafi fundist það líka,“ sagði Andrés í samtali við UÍA.

„Þetta er alveg klikkað tækifæri sem ekki hver sem er fær. Mér fannst lygilegt að heyra þjóðsönginn fyrir leikina og fá svo að spila körfubolta fyrir landið mitt. Þessari reynslu gleymi ég aldrei.“

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok