Malarvinnslubikarinn
<font size="2"><p>Línur eru farnar að skýrast í keppninni og báðir riðlar galopnir.</p><p /></font>
<p>Borgfirðingar hafa forystu í a-riðli þegar mótið er hálfnað, einu stigi meira en Höttur. UÍB fylgir svo fast á hæla þeirra en Þristarmenn hafa ekki náð sér á flug þetta sumarið.</p><p>Í b-riðli virðast verktakarnir í HRV vera með verktak :) á hinum liðunum því þeir hafa sigrað fjóra leiki í röð og hafa eins stigs forystu á BN´96 þegar mótið er hálfnað. En það má geta þess að HRV á leik inni á hin liðin á móti Dýnamó sem einnig á leik inni. Stórveldið KE virðast vera að missa flugið eftir góða byrjun en allt getur gerst ennþá því mótið bara rétt rúmlega hálfnað og verða lokaumferðirnar spenandi.</p><p>Stöðuna í deildinni má finna hér á vefnum til hliðar.</p>