Dómaranámskeið í frjálsum íþróttum
Laugardaginn 4. júní verður dómaranámskeið FRÍ á Egilsstöðum. Námskeiðið fer fram í Grunnskólanum á Egilsstöðum og stendur frá 12-17.30.
Birgir Guðjónsson formaður tækninefndar FRÍ sér um kennsluna og veitir námskeiðið dómararéttindin frá FRÍ. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu. Skráningar fara fram á skrifstofu UÍA í síma 4711353 eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
Hvetjum frjálsíþróttaáhugamenn og -konur að láta þetta ekki framhjá sér fara.