Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ

 

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram laugardaginn 4. júní á 84 stöðum hér á landi og 17 stöðum erlendis.

 

Í ár er yfirskrift hlaupsins “Hreyfing allt lífið” að tilefni samstarfs ÍSÍ við Styrktarfélagið Líf.

Sjóvá stendur fyrir léttum leik þar sem fjöldi vinninga er í boði, gjafakort uppá 30.000 kr, dekurdagur ofl. Það eina sem þarf að gera er að skrá nafnið sitt á ákveðna miða á hlaupadag eða fara inn á sjova.is og taka þátt í leiknum þar.

Fjölbreytt dagskrá verður um allt land á hlaupastöðum.

Allar upplýsingar um hlaupastaði og forsölu á bolum er að finna á sjova.is.

Hvetjum við allar konur á öllum aldri til að taka þátt.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ