Litli kompás námskeið á Egilsstöðum

Í tilefni af útgáfu bókarinnar Litli kompás, handbók um mannréttindamenntun fyrir börn á aldrinum 7 – 13 ára, stendur Æskulýðsvettvangurinn og Félag fagfólks í frítímaþjónustu með stuðningi frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu fyrir námskeið á Egilsstöðum þann 24. september, í notkun á bókinni.

Litli kompás er handbók um mannréttindamenntun fyrir börn sem nýtist fagfólki í æskulýðsmálum og öllum þeim sem vinna með börnum. Í handbókinni er fjallað um lykilhugtök á sviði mannréttinda og réttinda barna. Kjarni bókarinnar er 40 fjölbreytt verkefni sem byggjast á virkum kennsluaðferðum og er ætlað að hvetja og örva áhuga og vitund barna um mannréttindi í eigin umhverfi. Verkefnin eiga ennfremur að þroska gagnrýna hugsun, ábyrgð og réttlætiskennd og stuðla að því að börn læri að grípa til aðgerða og leggja sitt af mörkum til hagsbóta fyrir samfélagið. Auk þess er í bókinni fræðileg umfjöllun um þrettán lykilatriði mannréttinda, svo sem lýðræði, borgarvitund, kynjajafnrétti, umhverfismál, fjölmiðla og ofbeldi.

Kennari á námskeiðinu er Jóhann Þorsteinsson, M.Ed. í menntunarfræðum og sviðsstjóri æskulýðssviðs KFUM og KFUK á Íslandi.

Námskeiðið hér eystra fer fram sem fyrr segir 24. september frá kl. 13.00 – 17.00 í sal björgunarsveitarinnar á Héraði, Miðási 1 – 5.

Skráning og upplýsingar eru í síma 568 - 2929 eða hjá This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Við skráningu þarf að koma fram nafn, netfang og starfsvettvangur. Þátttökugjald er 1000kr. og greiðist í upphafi námskeiðs. Innifalið í þátttökugjaldi eru léttar veitingar.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ