Fyrirmyndardeildir ÍSÍ

Tvær deildir Íþróttafélagsins Hattar fengu endurnýjun viðurkenninga frá ÍSÍ sem Fyrirmyndardeildir á Jólamóti fimleikadeildarinnar í íþróttahúsinu á Egilsstöðum laugardaginn 7. desember síðastliðinn.

Það var mikið um dýrðir í íþróttahúsinu og ánægjulegt að tvær stærstu greinar innan Hattar tóku á móti þessari viðurkenningu á sama tíma.  Það var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri sem afhenti fulltrúum deildanna þeim Skarphéðni Smára Þórhallsyni formanni yngri flokka í knattspyrnu og Dagbjörtu Kristinsdóttir gjaldkera fimleikadeildarinnar viðurkenningarnar og fána Fyrirmyndarfélaga.  Ungir iðkendur frá báðum deildum voru viðstaddir afhendinguna og settu skemmtilegan svip á hana.

Fimleikadeild Hattar hlaut sína viðurkenningu árið 2004 og knattspyrnudeildin árið 2007.

Hvað felst í því að vera fyrirmyndarfélag?

Íþróttahreyfingin gerir kröfur til samfélagsins um stuðning, bæði aðgang að mannvirkjum og beinan fjárstuðning. Íþróttahreyfingin vill að litið sé á þennan stuðning sem endurgjald fyrir þjónustu sem hún veitir öllum þegnum samfélagsins. Til þess að slíkar kröfur séu trúverðugar og réttlætanlegar þarf íþróttahreyfingin að sýna það í verki að hún geri raunhæfar kröfur til sjálfrar sín hvað varðar gæði og innihald þess starfs sem hún vinnur. Þetta hefur hún gert með samþykkt stefnuyfirlýsinga um afmarkaða málaflokka, þar sem fram kemur að hvernig starfi sé stefnt. Slíkar stefnuyfirlýsingar hafa m.a. verið samþykktar um barna- og unglingastarf, menntun þjálfara og forvarnastarf.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ