Bikarmót UÍA í sundi, úrslit.

Bikarmót Austurlands í sundi fór fram á Djúpavogi síðastliðinn laugardag. Rúmlega 100 keppendur frá sex sunddeildum á Austurlandi mættu til keppni og söfnuðu inn stigum fyrir sitt félag. Bikarmótið er stigamót þar sem að stigahæsta liðið hlýtur titilinn Bikarmeistari Austurlands. 

Heimamenn í Neista voru með fjölmennt lið og voru staðráðnir í að verja titilinn en Neisti hefur sigrað mótið síðustu ár. Það brutust því út mikil fagnaðarlæti hjá heimamönnum þegar það lá ljóst fyrir að Neisti bar sigur út bítum bæði sem stigahæsta karla- og kvennalið ásamt því að vinna heildarstigakeppni mótsins. Það var lið Austra sem varð í öðru sæti og Leiknir í því þriðja.

Framkvæmd mótsins var í höndum sundráðs UÍA og gekk vel og fjöldi sjálfboðaliða hjálpuðu til við framkvæmdina.

Við óskum Neista til hamingju með árangurinn og þökkum öllum keppendum og starfsfólki fyrir skemmtilegt mót.

Hér má sjá heildarúrslit mótsins

Hér má sjá úrslit úr stigakeppninni

 

Myndir af mótinu verða fljótlega settar inn á vefinn.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ