Blaktímabilið komið á fullt hjá Þrótti
Tveir leikir fóru fram á Neskaupsstað þann 5. október sl. og fór Þróttur með sigur af hólmi í þeim báðum.
Karlalið Þróttar vann HK 3 - 2. Hrinur: 27-25, 14-25, 20-25, 25-16, 15-12.
Stigahæstu leikmenn Þróttar voru Valgeir með 17 stig og Matthías með 14 stig.
Kvennalið Þróttar vann Stjörnuna mjög sannfærandi 3 - 0. Hrinur: 25-14, 25-16, 25-20.
Stigahæstu leikmenn Þróttar voru þær Jóna Guðlaug með 21 stig og Kristín Salín og Lilja báðar með 6 stig.