Körfubolti: FSu lagði Hött

Höttur lék sinn fyrsta heimaleik í 1.deild körfuboltans sl. föstudag á móti FSu. Leikurinn var mjög spennandi og réðust úrslitin ekki fyrr en á lokasekúndu leiksins.

Í hálfleik var staðan 43-44 gestunum í vil. Hattarmenn komu öflugir inn í seinni hálfleikinn og leiddu leikinn 62-58 að loknum þriðja leikhluta. FSu komst yfir í lokinn og endaði leikurinn 85-87.

Í liði Hattar var Frisco Sandidge stigahæstur með 22 stig og 11 fráköst.

Liðið leikur sinn næsta leik gegn Fjölni þann 25. október.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ