Meistarar krýndir í lok HEF mótaraðarinnar
Viðurkenningar voru veittar fyrir afrek sumarsins á HEF mótaröðinni að loknu þriðja og síðasta mótinu á Vilhjálmsvelli í lok ágúst. Að þessu sinni var keppt í kúluvarpi, grindahlaupi, spjótkasti og þrístökki.
Keppendur söfnuðu stigum yfir sumarið og hlaut stigahæsti einstaklingurinn í hverjum flokki verðlaun. Sigurvegarar urðu sem hér segir:
11 ára
Almar Aðalsteinsson, Hetti
Ásdís Hvönn Jónsdóttir, Hetti
12-13 ára
Heiða Elísabet Gunnarsdóttir, Þrótti
Steingrímur Þorsteinsson, Hetti
14-15 ára
Mikael Máni Freysson, Þristi
Helga Jóna Svansdóttir, Hetti
16 ára og eldri
Daði Fannar Sverrisson, Hetti
Lovísa Hreinsdóttir, Hetti