Skógarhlaup Súlunnar
Ungmennafélagið Súlan á Stöðvarfirði verður með skógarhlaup í Nýgræðingnum, sem er við tjaldstæði bæjarins, föstudaginn 4. október kl. 17:00.
Hlaupið er jafnt fyrir unga sem aldna og boðið verður upp á fimm vegalengdir fyrir ólíka aldurshópa.
Hvetjum við alla til að reima á sig hlaupaskóna og vera með.