Í formi á Höfn
Íþróttahátíðin Í formi verður haldin á Höfn í Hornafirði helgina 20-21. september. Hátíðin er ætluð fyrir þrjátíu ára og eldri.
Keppt er í bridge, blaki, brennibolta, hniti, fótbolta, frjálsum íþróttum og golfi.
Við hvetjum íþróttakempurnar okkar á svæðinu til að fjölmenna á Hornafjörð á þetta stórskemmtilega mót.
Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins.