Auglýst eftir umsóknum í Sprett
UÍA auglýsir eftir umsóknum í Sprett - styrktarsjóð UÍA og Alcoa Fjarðaáls. Umsóknarfrestur er til 7. október.
Að þessu sinni er úthlutað afreksstyrkjum og iðkendastyrkjum til íþróttamanna 18 ára og yngri. Einnig er úthlutað þjálfara- og félagastyrkjum.
Í ár verður úthlutað 2,4 milljónum króna úr sjóðnum en Fjarðaál jók í ár framlag sitt í sjóðinn um eina milljón króna. Í vor var úthlutað 760.000 krónum úr sjóðnum.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað er hér.
Einnig veitir skrifstofa UÍA nánari upplýsingar í síma 471-1353 eða netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..