Launaflsbikarinn 2013: Máni og Spyrnir mætast í úrslitum
UMF Máni og Spyrnir mætast í úrslitaleik Launaflsbikarsins árið 2013. Leikið verður á Djúpavogsvelli á sunnudaginn 18. ágúst klukkan 16:00.
Þetta varð ljóst í fyrrakvöld eftir að Spyrnir lagði UMFB á Borgarfirði í undanúrslitum, 1-3. Jóhann Klausen, Arnar Jóel Rúnarsson og Ástráður Ási Magnússon skoruðu mörk Spyrnis en Unnar Ari Hansson fyrir heimamenn.
Áður hafði Máni tryggt sér sæti í úrslitaleiknum. Liðið átti að mæta Boltafélagi Norðfjarðar en þegar á reyndi náðu Norðfirðingar ekki í lið á Höfn. UMF Máni vann deildakeppnina.