Þriðja mótið í HEF mótaröðinni

Þriðja og síðasta mótið í mótaröð Frjálsíþróttaráðs UÍA og Hitaveitu Egilsstaða og Fella verður haldið á Vilhjálmsvelli miðvikudaginn 21. ágúst klukkan 18:00.

Að þessu sinni verður keppt í kúluvarpi, spjótkasti, grindahlaupi og þrístökki í flokkum 11 ára, 12-13 ára, 14-15 ára og 16 ára og eldri, pilta og stúlkna. Stigabikarar fyrir mót sumarsins verða afhentir stigahæsta einstaklingnum í hverjum flokki í mótslok.

Þátttökugjaldið er 500 krónur á hvern keppanda.

Skráning og nánari upplýsingar eru hjá skrifstofu UÍA í síma 471-1353 eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ