Launaflsbikarinn 2013: Undanúrslit

BN varð síðasta liðið til að tryggja sig inn í undanúrslit Launaflsbikarsins í knattspyrnu þegar liðið lagði Þrist á Fellavelli 3-5 í fyrrakvöld. Undanúrslit keppninnar verða leikin um helgina.

UMF Máni frá Hornafirði fór með sigur af hólmi í deildakeppninni og fær því heimaleik gegn BN í undanúrslitunum. Í hinum leiknum tekur UMFB á móti Spyrni. Liðin mættust í lokaumferðinni á Fellavelli. Borgfirðingar unnu þann leik og tryggðu sér þar með heimaleikjaréttinn.

Leiktími er áætlaður klukkan 18:00 á sunnudag.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ