Samæfing fyrir Unglingalandsmót
Samæfing í frjálsíþróttum fyrir Unglingalandsmótið verður haldin á Vilhjálmsvelli klukkan 18:00 miðvikudaginn 31. júlí. Æfingin er öllum opin, 11 ára og eldri.
Sandra María Ásgeirsdóttir, farandþjálfari UÍA, stýrir æfingunni en henni til halds og trausts verða þjálfarar frá Hetti.