Sumarhátíð 2013: Úrslit í borðtennis
Kristófer Gauti Þórhallsson, Hetti, sigraði í borðtenniskeppni Sumarhátiðar UÍA og Síldarvinnslunnar en keppt var í húsnæði félagsmiðstöðvarinnar Ný-ungar á föstudag. Kristófer Gauti sigraði alla andstæðinga sína.
Keppt var í tveimur flokkum: 10 ára og yngri og 11 ára og eldri en þátttakendur í yngri flokknum fengu þátttökuverðlaun.
Í eldri flokknum var skipt í tvo flokka, konur og karla. Þórey Eiríksdóttir, Ásnum og Jóney Jónsdóttir, Hetti, urðu efstar í kvenna flokknum en Kristófer Gauti og Mikael Máni Freysson í karlaflokknum.
Kristófer Gauti hafði betur gegn Þóreyju í úrslitaleiknum, 2-0 en Jóney lagði Mána í keppni um bronsið, einnig 2-0.