Sumarhátíð 2013: Úrslit Nettómótsins í frjálsíþróttum
Höttur fagnaði sigri í stigakeppni Sumarhátíðar UÍA og Síldarvinnslunnar á Nettómótinu í frjálsíþróttum, bæði í yngri og eldri flokki. Halla Helgadóttir, Hetti og Bjarni Tristan Vilbergsson, Neista, fengu verðlaun fyrir bestu afrek einstaklinga í keppninni.
Halla fékk viðurkenninguna fyrir að stökkva 9,24 metra í þrístökki en Bjarni Tristan kastaði spjótinu 46,40 metra.
Um 200 keppendur tóku þátt í mótinu í ár sem er svipuð þátttaka og undanfarin tvö ár.