Samæfing í frjálsum á mánudag
UÍA efnir til samæfingar í frjálsíþróttum á Vilhjálmsvelli mánudaginn 8. júlí klukkan 18:00. Sandra María Ásgeirsdóttir, farandþjálfari UÍA, stýrir æfingunni.
Æfingin er öllum opin en aðaltilgangur hennar er að gefa þeim sem vilja kost á að æfa við bestu aðstæður.