Þróttur fagnar 90 ára afmæli
Norðfirðingar halda upp á 90 ára afmæli Þróttar um helgina og bjóða til sín gestum. Hátíðahöldin hófust í gær þegar friðarhlaupið kom í bæinn og um kvöldið var sundlaugargleði.
Á morgun verður strandblakmót. Keppt verður í unglingaflokki og A og B flokki fullorðinna. Skráningar eru á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. en þátttökugjaldið er ekkert. Nánari upplýsingar eru á vef blakdeildarinnar.
Á sunnudagsmorgun klukkan 11:00 verður víðavangshlaup UÍA ræst frá Verkmenntaskóla Austurlands. Að því loknu, eða á milli klukkan 14 og 16 verður afmæliskaffi í Egilsbúð. Þar verða til sýnir myndir og ýmsir munir úr eigu félagsins.