Launaflsbikarinn 2013: Úrslit úr annarri umferð
Borgfirðingar unnu ríkjandi meistara í BN á Norðfirði í æsilegum leik á Norðfirði á sunnudag 2-3. Liðin enduðu í tveimur efstu sætum keppninnar í fyrra.
Borgfirðingar komust yfir 0-1 og 1-2 en Norðfirðingar jöfnuðu strax í bæði skiptin. Það var hins vegar mark Hallgríms Inga Ólafssonar í uppbótartíma sem tryggði Borgfirðingum sigurinn.
UMFB er með sex stig líkt og UMF Máni sem vann Þrist á Fellavelli 1-2.
Þá vann Spyrnir Val Reyðarfirði á Fellavelli 4-1 á föstudagskvöldið.
Þriðja umferðin verður leikin um helgina. Máni tekur þá á móti BN, Valur á móti Þristi og Hrafnkell, sem hvíldi um helgina, fær Spyrni í heimsókn.