Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda eða ganga!
Almenningsíþróttaverkefni UMFÍ, Hættu að hanga - komdu að synda, hjóla eða ganga hófst þann 5. júní síðastliðinn og stendur til 15. september. Verkefnið fór fyrst af stað fyrir þremur árum.
Megintilgangur verkefnisins er að hvetja einstaklinga, fyrirtæki, fjölskyldur og hópa til að hreyfa sig og stunda heilbrigða lifnaðarhætti. Þátttakendur skrá inn þá hreyfingu sem þeir stunda inn á vefinn ganga.is. Einnig halda þátttakendur utanum þau fjöll sem þeir ganga á.
Fyrir að hreyfa sig í 30 skipti fá þátttakendur bronsmerki, silfurmerki fyrir 60 skipti og gullmerki fyrir 80 skipti. Einnig eiga þátttakendur kost á öðrum veglegum verðlaunum fyrir þátttöku sína.
Öllum er heimil þátttaka óháð aldri. UMFÍ vill hvetja sem flesta til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni og stunda um leið heilbrigt líferni.