Búningapantanir fyrir sumarið
Pantanir á UÍA göllum sem eiga að vera tilbúnir fyrir Landsmót UMFÍ fyrstu helgina í júlí þurfa að hafa borist skrifstofu fyrir 18. júní næstkomandi.
UÍA býður sem fyrr upp á peysur með eða án hettu. Peysurnar kosta 6.000 krónur. Tvenns konar snið er í boði, kvensnið sem er með þrengra og lengra stroffi og unisex-snið. Hægt er að panta bláar hlaupabuxur með sem eiga að passa við búninginn. Þær kosta 3.500 krónur.
Þá er einnig hægt að panta keppnisbúninga í frjálsíþróttum. Hlýrabol og hjólabuxur á 10.000 krónur eða topp og hjólabuxur á 9.000 krónur.
Fötin eru framleidd af Henson.
Hægt er að leggja inn pantanir með því að hringja í skrifstofu UÍA í síma 471-1353 eða senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
Stærðir
86
92
98
104
110
116
122
128
134
140
146
152
158
164
170S
180M
186L
192XL
198XXL
XXXL