Þjálfaranámskeið/endurmenntun fyrir íþróttakennara í sundi
Hann Brian Daniel Marshall er að koma hingað austur og ætlar að vera með þjálfaranámskeið/endurmenntun fyrir íþróttakennara í sundi.
Hann er á vegum Sundsambands Íslands og verður námskeiðið haldið í Neskaupsstað á laugardaginn, 25. maí og byrjar það klukkan 11:30, gert er ráð fyrir því að það standi fram að kvöldmat. Námskeiðið er í þremur hlutum, það byrjar í Nesskóla og svo verður farið út í sundlaug og svo aftur inn í skóla. Brian ætlar líka að vera á sundmótinu sunnudeginum og verður mótið líklega nýtt til þess að halda eitthvað áfram.
Gjaldið ætti ekki að fara yfir 5000 kr á mann. Endilega nýtið ykkur þetta tækifæri, við hvetjum alla sem hafa áhuga til að mæta