Sprettur tók við gleðigjöfum frá Landflutningum
Sprettur Sporlangi tók nýverið við ávísun frá Landflutningum fyrir gleðigjafir ársins 2012. Rúmlega 350.000 krónur söfnuðust í átakinu
Síðustu tvö jól hafa Landflutningar látið ágóða af jólapökkum sem sendir eru með fyrirtækinu renna til starfsemi UÍA. Að þessu sinni voru sendir 562 pakkar frá Austurlandi.
Björn Ármann Ólafsson, rekstrarstjóri Landflutninga á Austurlandi afhenti UÍA nýverið ávísun upp á 353.880 krónur. Sprettur Sporlangi tók við ávísuninni og gaf Birni Ármanni innilegt faðmlag að skiptum.
Upphæðinni verður varið í barna og unglingastarf innan UÍA.
Mynd: Jón Guðmundsson