Ert þú UÍA maður á stormandi ferð?

Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands, UÍA óskar eftir sumarstarfsmanni.

Helstu verkefni:

• Umsjón með farandþjálfun

• Umsjón með frjálsíþróttaskóla UMFÍ

• Undirbúningur og framkvæmd fjölbreyttra íþróttamóta og -viðburða

Starfsmaðurinn sem við erum að leita að þarf að:

• Hafa víðtæka þekkingu og reynslu af þjálfun barna og unglinga, einkum

í frjálsíþróttum. Íþróttafræðimenntun er kostur en ekki skilyrði.

• Vera góð fyrirmynd fyrir börn og unglinga.

• Vera skipulagður og sjálfstæður í vinnubrögðum

• Vera jákvæður og lipur í mannlegum samskiptum

• Hafa brennandi áhuga á íþróttum

• Hafa bílpróf

 

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 1. júní.

Sumarstarfsmaður starfar með framkvæmdastjóra og stjórn UÍA.

Umsóknir skulu berast fyrir 1. mars n.k. á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Nánari upplýsingar veitir skrifstofa UÍA, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., s: 4711353.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ