Handboltadagur Hugins
Handboltadagur Hugins fer fram laugardaginn 2. mars í Íþróttahúsinu frá klukkan 13-15. Þetta er þriðji viðburðurinn á árinu í tengslum við 100 ára afmæli Hugins. Markmið dagsins er fyrst og síðast að leika sér saman og hafa gaman.
Stórir sem smáir eru hvattir til að mæta enda er þetta tilvalið tækifæri til að eyða tíma með fjölskyldunni, vinum og kunningjum, annaðhvort að mæta og spila handbolta eða bara horfa á og hvetja aðra til dáða.