Úrvalshópur UÍA í frjálsum tók á sprett með Birni Margeirssyni
Úrvalshópur UÍA fékk til sín góðan gest síðastliðinn mánudag þegar afrekshlauparinn Björn Margeirsson heimsótti hópinn og tók með honum góða hlaupaæfingu á Vilhjálmsvelli.
Björn er hlaupurum og frjálsíþróttafólki að góðu kunnur. Hann hefur stundað millivegalengda- og langhlaup um árabil með góðum árangri og kom t.d. fyrstur í mark í Laugavegshlaupinu síðasta sumar á tímanum 4:19:55.
Aðstæður á Vilhjálmsvelli voru stórgóðar miðað við árstíma. Hlýtt í veðri og ekki snjókorn á brautinni. Björn jós úr reynslubrunni sínum yfir krakkana og kenndi þeim margvíslegar æfingar sem eiga eflaust eftir að nýtast vel við undirbúninginn fyrir komandi keppnistímabil.