Fimmta vetrarhlaup Hlaupahéranna á laugardag

 

Með hækkandi sól og batnandi hlaupafæri er komið að fimmta hlaupinu í vetrarhlaupasyrpu Hlaupahéranna en það fer fram næstkomandi laugardag, 23. febrúar.

Þess má til gamans geta að hlauparinn landsþekkti Björn Margeirsson hefur boðað komu sína í hlaupið. Björn er með bestu millivegalengda- og langhlaupurum landsins og kom t.d. fyrstur í mark í Laugavegshlaupinu á síðasta ári á tímanum 4:19:55. Við hvetjum ykkur að sjálfsögðu til að missa alls ekki af gullnu tækifæri til að hlaupa með þessum magnaða hlaupara og veita honum samkeppni.

 

Fyrirkomulag hlaupsins er eins og vant er. Hlaupnir eru 10 km með tímatöku og gefur þátttaka 1-5 stig í vetrarhlaupastigakeppninni. Einnig verður boðið upp á 5 km hlaup með tímatöku en það gefur ekki stig. Hlauparar verða ræstir af stað frá íþróttahúsinu á Egilsstöðum kl. 11:00 en skráning hefst hálftíma fyrir hlaup. Skráningargjald er 1000 krónur og innifalin er létt hressing og aðgangur að sundlauginni að hlaupi loknu. Allir sem taka þátt eiga þess kost að fá vegleg útdráttarverðlaun sem að þessu sinni koma frá Café Valný á Egilsstöðum. Við minnum á að allir geta verið með, ekki er nauðsynlegt að hafa tekið þátt í öllum hlaupum syrpunnar.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok