Ánægjuvogin - Styrkur íþrótta

 

Ánægjuvogin er könnun sem UMFÍ og ÍSÍ stóðu að í sameiningu á stöðu íþróttastarfs, ánægju iðkenda, stöðu áfengis og tóbaksnotkunar og fleira meðal sambandsaðila í 8.-10.bekk.

Fimmtudaginn 14. febrúar munu UMFÍ og ÍSÍ standa í sameiningu fyrir fundi í Grunnskólanum á Egilsstöðum og hefst fundurinn klukkan 17:15.

 

Þar mun Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, m.a. ræða um hvort að íþróttahreyfingin sé að standast áskoranir nútímasamfélags eða eingöngu að þjálfa til árangurs. Viðar mun styðjast við niðurstöður                    rannsóknarinnar Ánægjuvogin sem Rannsókn og greining gerði fyrir UMFÍ og ÍSÍ.

Þátttaka er ókeypis og öllum heimil og við hvetjum sem flesta til að mæta.

Fundurinn verður sendur út í gegnum netið og munu nánari leiðbeiningar um hvernig tengjast skal fundinum birtast hér á síðunni um kl 17 á fimmtudag.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok