Lífshlaupið að hefjast: Allir með!

 

Lífshlaupið verður ræst í sjötta sinn miðvikudaginn 6. febrúar n.k. Um 20.900 manns tóku þátt í Lífshlaupinu á síðasta ári og fjölgaði þátttakendum um 4500 á milli ára. Lífshlaupið höfðar til allra landsmanna og er hægt að skrá þátttöku á vefsíðu Lífshlaupsins en þar gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í:

Vinnustaðakeppni frá 6. – 26. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)

Hvatningarleik fyrir grunnskóla frá 6. – 19. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)

Einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið.

Markmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig og huga að sinni hreyfingu í frítíma, heimilisstöfum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum embætti landlæknis um hreyfingu. Börn og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og fullorðnir a.m.k. 30 mínútur á dag.

Vinnustaðir/skólar er sá vettvangur þar sem hagsmunir vinnustaða og íþróttahreyfingarinnar liggja saman við uppbyggingu almennings- og fyrirtækjaíþrótta, forvörnum og velferð samfélagsins til framtíðar. Við óskum eftir liðsinni ykkar við að hvetja vinnustaði, grunnskóla og einstaklinga í ykkar sveitarfélagi til þátttöku. Nota tækifærið til að skapa létta stemningu og efla í leið líkama, sál og félagsandann með því að hreyfa sig daglega. Við hvetjum ykkur til þess að segja frá Lífshlaupinu á ykkar heimasíðu. Hægt er að fá hnapp hjá ÍSÍ til að setja inn á heimasíðuna sem leiðir áhugasama inn á heimasíðu verkefnisins.

Samstarfsaðilar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands vegna Lífshlaupsins eru: mennta- og menningarmálaráðuneytið, velferðarráðuneytið, embætti landlæknis, Advania, Rás 2 og Ávaxtabíllinn.

Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Jóna Hildur Bjarnadóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. í síma: 514-4000.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ