Ánægjuvogin - Styrkur íþrótta
Ánægjuvogin er könnun sem UMFÍ og ÍSÍ stóðu að í sameiningu á stöðu íþróttastarfs, ánægju iðkenda, stöðu áfengis og tóbaksnotkunar og fleira meðal sambandsaðila í 8.-10.bekk.
Mánudaginn 28.janúar munu UMFÍ og ÍSÍ standa í sameiningu fyrir fundi á Egilsstöðum í Hlymsdölum og hefst fundurinn klukkan 17:15.
Þar mun Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, m.a. ræða um hvort að íþróttahreyfingin sé að standast áskoranir nútímasamfélags eða eingöngu að þjálfa til árangurs. Viðar mun styðjast við niðurstöður rannsóknarinnar Ánægjuvogin sem Rannsókn og greining gerði fyrir UMFÍ og ÍSÍ.
Þátttaka er ókeypis og öllum heimil og við hvetjum sem flesta til að mæta.
Stefnt er að því að senda fundinn út í gegnum netið og verður það nánar auglýst síðar.