HK sótti Þrótt heim um helgina
Mikið var um að vera í blakinu á Norðfirði um helgina, en þá sóttu kvenna- og karlalið HK, Þrótt heim. Þróttarkonur höfðu sigur 3-0 og var Hulda Elma Eysteinsdóttir Þrótti stigahæst með 14 stig. Þróttur trónir því á toppnum í Mikasadeild kvenna.
Íslandsmeistarar HK í karlaflokki höfðu betur gegn karlaliði Þróttar 3-1. Valgeir Valgeirsson Þrótti fór mikinn í leiknum og var stigahæstur með 21 stig. Þróttur er nú í 4. sæti í Mikasadeild karla.
Myndir: Jón Guðmundsson