Nýárssýning fimleikadeildar Hattar
Á morgunn, laugardaginn 19. janúar fer fram hin árlega Nýárssýning fimleikadeildar Hattar. Þar munu iðkendur deildarinnar setja upp fimleikaleikritið Skógarævintýri Móglís, sem er stórskemmtileg sýning fyrir alla fjölskylduna.
Sýnt verður í íþróttahúsinu á Egilsstöðum kl 13:00 og 15:00. Forsala aðgöngumiða fer fram í íþróttahúsinu í dag frá kl 16:30-18:00 og á morgunn laugardag frá kl 10:00-11:00. Miðaverð í forsölu er 1200 kr. Einnig verður hægt að nálgast miða við innganginn og er þá almennt miðaverð 1500 kr og 800 kr fyrir grunnskólabörn.
Allir eru velkomnir.