Síðasti dagur til að sækja um í ferðasjóð ÍSÍ
Nú líður að lokum skilafrests umsókna í Ferðasjóð íþróttafélaga. Síðasti skiladagur umsókna er í dag, mánudaginn 7. janúar. Umsóknarsvæðið verður opið til miðnættis og hægt að sækja rafrænt um á heimasíðu ÍSÍ.
Öll íþrótta- og ungmennafélög eru hvött til að sækja um styrk í sjóðinn vegna keppnisferða ársins 2012.