Hörð barátta um Aðalsteinsbikarinn
Fjórðungsglíma Austurlands – keppnin um Aðalsteinsbikarinn fór fram í Íþróttahúsinu á Reyðarfirði 27. desember 2012.
Fimmtán keppendur kepptu í tveimur flokkum karla og tveimur flokkum kvenna, en þar sem keppendur voru heldur færri en undanfarin ár voru 13-15 ára flokkar sameinaðir karla og kvennaflokkum. Mótið gekk vel fyrir sig og sjá mátti margar fjörugar glímur um hin veglegu verðlaun, Aðalsteinsbikarinn, sem gefinn er í minningu Aðalsteins Eiríkssonar glímukappa og glímufrömuðar á Reyðarfirði.
Eftir margar skemmtilegar glímur stóðu eftirtaldir uppi sem sigurvegarar og hömpuðu því Aðalsteinsbikarnum árið 2012
Stelpur 10-12 ára – Kristín Embla Guðjónsdóttir
Strákar 10- 12 ára – Máni Snær Ólafsson
Meyjar 13-15 ára – Bylgja Rún Ólafsdóttir
Piltar 13- 15 ára – Haraldur Eggert Ómarsson
Konur - Eva Dögg Jóhannsdóttir
Karlar – Hjalti Þórarinn Ásmundsson
Kvennaflokkur
- sæti Eva Dögg Jóhannsdóttir 1 1 2
- sæti Bylgja Rún Ólafsdóttir 0 0 0
Karlaflokkur
- sæti Hjalti Þórarinn Ásmundsson x 1 1 1 1 4
- sæti Ásmundur Hálfdán Ásmundsson 0 x 1 1 1 3
- sæti Magnús Karl Ásmundsson 0 0 x 1 1 2
- sæti Hjörtur Elí Steindórsson 0 0 0 x 1 1
- sæti Haraldur Eggert Ómarsson 0 0 0 0 x 0
Stelpuflokkur
- sæti Kristín Embla Guðjónsdóttir x ½ 1 1 1 1 4 ½
- sæti Bryndís Steinþórsdóttir ½ x 1 1 ½ 1 4
- sæti Rebekka Rut Svansdóttir 0 0 x 1 1 1 3
- sæti Nikólína Bóel Ólafsdóttir 0 ½ 0 x 1 1 2 ½
- sæti Fanney Ösp Guðjónsdóttir 0 0 0 0 x 1 1
- sæti Marta Lovísa Kjartansdóttir 0 0 0 0 0 x 0
Strákaflokkur
- sæti Máni Snær Ólafsson 1 1 2
- sæti Leifur Páll Guðmundsson 0 0 0
Glímustjóri Þorvaldur Aðalsteinsson
Ritari Ásmundur Ásmundsson
Tímavörður Hjördís Helga Þóroddsdóttir
Yfirdómari Snær Seljan Þóroddsson
Meðdómarar Sindri Freyr Jónsson
Laufey Frímannsdóttir