Skinfaxi með austfirsku ívafi
Okkar fólk er áberandi í nýjasta hefti Skinfaxa tímarits UMFÍ. Helka Kolka Hlöðversdóttir úr Neskaupstað segir þar frá dvöl sinni í lýðháskóla í Árósum (bls 28-29), æfingabúðir UÍA í frjálsum fá heilsíðu frétt (bls 4), tveir fulltrúar frá okkur segja frá námskeiði NSU (bls 38-40) og viðtal við Kristján Fjallanger (bls 34-45) var skrifað hér eystra.
UÍA fólk má svo einnig sjá á víð og dreif um blaðið, auk fjölda skemmtilegra frétta af íþrótta- og ungmennastarfi víðsvegar um landið.
Vefútgáfu af Skinfaxa má sjá hér