Gleðileg jól: Jólafrí hjá UÍA
Starfsfólk UÍA, stjórn og Sprettur Sporlangi óska Austfirðingum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Skrifstofan er farin í frí og ekki verður viðvera þar fyrr en eftir áramót. Við vöktum þó póstinn okkar This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og símann 471-1353.
Síðasta verk okkar fyrir jólafrí var að gefa út tímaritið Snæfell sem berst Austfirðingum í dag og á morgun. Í því kennir ýmissa grasa meðal annars viðtöl við Rafn Heiðdal, fyrrverandi knattspyrnumann og Helenu Kristínu Gunnarsdóttur, íþróttamanns UÍA auk þess sem hlaupið er yfir helstu verkefni ársins.