Ásmundur Hálfdán á toppi styrkleikaleikalista unglinga hjá Glímusambandinu
Á heimasíðu Glímusambands Íslands má nú finna styrkleikalista glímumanna 2012. Á listanum er að finna nokkra glimumenn frá UÍA. Í flokki unglinga trjónir UÍA maðurinn Ásmundur Hálfdán Ásmundsson á toppnum, félagar hans Hjörtur Elí Steinþórsson er í þriðja sæti í sama flokki og Svanur Ómarsson í því fjórða. Í flokki karla er Magnús Karl Ásmundsson í 5. sæti, bróðir hans Ásmundur Hálfdán í því 7.-8. sæti og Hjörtur Elí Steinþórsson er þrettándi á listanum. Í flokki kvenna situr Eva Dögg Jóhannsdóttir UÍA í þriðja sæti og stallsystir hennar Þuríður Lillý Sigurðardóttir í því fimmta.
Styrkleikalistann má sjá í heild sinni hér.
Spennandi verður að sjá hvernig þessir glimumenn klára árið, en síðasta mót ársins, Fjórðungsglima Austurlands fer fram 27. desember á Reyðarfirði.
Við óskum glimufólkinu okkar til hamingju með glæsilegan árangur á árinu.