Þróttur á toppi Mikasadeildarinnar
Í gær lék kvennalið Þróttar í blaki sinn síðasta leik á árinu er þær mættu Stjörnunni í kraftmiklum leik í Neskaupstað.
Stelpurnar okkar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu 3-0; 25-15, 25-20,25-19. Stigahæstu leikmenn Þróttar voru Elma Eysteinsdóttir með 17 stig og Lauren Laquerre með 13 stig.
Leikir helgarinnar voru síðust leikir Mikasadeildarinnar fyrir jólafrí og fer lið Þróttar með fullt hús í jólafrí og hefja nýtt ár á toppi deildarinnar. Keppni hefst aftur 4. janúar.