Konur ráða ríkjum hjá Blæ
Þann 22. nóvember síðastliðinn hélt Hestamannfélagið Blær Norðfirði aðalfund sinn fyrir starfsárið 2012-2013. Þar var kosið til stjórnar þar sem flestir í fráfarandi stjórn gáfu ekki kost á sér til endurkjörs.
Nýja stjórn skipa: Sigrún Júlia Geirsdóttir formaður, Guðbjörg O. Friðjónsdóttir varaformaður, Þórey Sigfúsdóttir gjaldkeri, Vilborg Stefánsdóttir ritari og Heiðrún Þorsteinsdóttir meðstjórnandi. Varamenn eru Guðrún Smáradóttir og Margrét Ósk Vilbergsdóttir. Þetta er í annað sinn í sögu félagsins sem stjórn þess er eingöngu skipuð konum.
Óskum við nýrri stjórn velfarnaðar í starfi.
Meðfylgjandi er mynd úr kvennareið félagsins í fyrrasumar, engin af heimasíðu félagsins.