Glæsilegur árangur hjá glímufólki UÍA
Keppendur UÍA í glímu gerðu afar góða ferð vestur í Búðardal um helgina, en þar tóku þeir þátt í 2. umferð Meistaramóts Íslands fyrir 16 ára og eldri, fimm gull og eitt silfur skiluðu sér austur að móti loknu.
Svanur Ómarsson sigraði – 80 kg flokk unglinga og Hjörtur Elí Steindórsson var í 2. sæti í sama flokki. Þá sigraði Ásmundur Hálfdán Ásmundsson í + 80 kg flokki unglinga og Eva Dögg Jóhannsdóttir sigraði – 65 kg flokk kvenna. Magnús Karl Ásmundsson sigraði síðan tvöfalt er hann vann bæði -80 kg og – 90 kg flokk karla.
Glæsilegur árangur hjá okkar fólki og óskum við þeim innilega til hamingju.